Tilgangur Vegarins
Að leiða fólk til Jesú og í söfnuð hans, þroska það sem lærisveina til Krists fyllingar og til þjónustu í kirkjunni. Senda það síðan út sem trúboða, allt Guði til dýrðar. Samkvæmt Matt. 22.37-40; 28.19-20. Elska Drottinn Guð þinn af öllu hjarta, elska náungann eins og sjálfan þig, fara út og gera alla að lærisveinum, skíra þá og kenna þeim að halda allt sem Jesús hefur boðað.
Hugsjón Vegarins
Starfrækja öflugt, lifandi og kærleiksríkt safnaðarstarf sem er leitt af Heilögum anda. Vera lækningarmiðstöð þar sem þörfum fólks innan sem utan kirkjunnar er mætt tilfinningalega, líkamlega og andlega. Hvetja til og stuðla að samvinnu kristinna safnaða á Íslandi með það að markmiði að breiða út fagnaðarerindið um Jesú Krist.
Þeir sem vilja tilheyra Fríkirkjunni Veginum þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
Hafa tekið á móti Jesú Kristi sem frelsara sínum. Líf þeirra fari ekki gegn þeim siðferðishugmyndum sem söfnuðurinn byggir á samkvæmt Biblíunni. Að kirkjan sé þeirra andlega heimili. Þeir lýsi því yfir að þeir vilji tilheyra kirkjunni og beygja sig undir starfshætti hennar, hugsjónir og skyldur. Atkvæðisbærir safnaðarmeðlimir skulu vera orðnir 18 ára gamlir.


