Konukvöld

Kennslan kostar 1.000 krónur. Prjónakonur hafi með sér tvær dokkur í sitt hvorum lit og samsvarandi prjóna – fyrir prufur. Þær sem vilja koma með aðra handavinnu eru að sjálfsögðu velkomnar og einnig þær sem enga handavinnu vilja.
Orðið verður gefið laust fyrir vitnisburði eftir því sem tími gefst til. Veitingar eru vel þegnar á hlaðborðið. Þórdís Sigurðar verður gestgjafi kvöldsins. Bjóðum vinkonum, kynnumst betur, uppbyggjum hvor aðra, fræðumst og lærum af hvor annarri og skemmtum okkur saman, í faðmi Föðurins.


