Fréttir


VEGABRÉFIÐ
PÓSTLISTI
SENDA PÓST
SPJALLRÁSIN
12.2.2010
Nýtt námskeið

Vegurinn, boðar til námskeiðs undir yfirskriftinni Heitu málin.  Þar eru tekin til umfjöllunar sjö algengar spurningarnar eða málefni, sem algengt er að hinir kristnu fá að heyra í hinu daglega lífi.  

Námskeiðið stendur í sjö vikur og hefst miðvikudaginn 10. febrúar, kl. 20.

 

Málefnin, dagsetningar og kennarar:

 

         10/2  Þjáningin í heiminum - Högni Valsson

         17/2  Önnur trúarbrögð - Sr. Þórhallur Heimisson

         24/2  Nýöldin - Friðrik Schram

          3/3   Kynlíf fyrir hjónaband - Guðmundur Sigurðsson

         10/3  Samkynhneigð - Guðmundur Barker

         17/3  Vísindi & trú - Snorri Óskarsson

         24/3  Heilög þrenning - Gunnar Þorsteinsson

 

Heyrum við ekki oft spurningar eins og “Af hverju er þjáning í heiminum?”, Ef Guð er til, af hverju leyfir hann þá þúsundum barna að deyja úr hungri á hverju ári?”, “Og öll þessi trúarbrögð, er ekki bara verið að tilbiðja einn og sama guðinn?”, Eru athafnir þeirra sem kenna sig við Nýöldina ekki bara saklausar og í raun af hinu góða?” og “Af hverju er frjálsu kirkjurnar svona mikið á móti hommum og lesbíum?”. 

 

Þessar spurningar eru spurðar ... og við þurfum að svara þeim. En hvernig gerum við það þegar á hólminn er komið?  Erum við nægilega undirbúin?  Höfum við þekkinguna á Orði Guðs?  Munum við eftir versunum?  Það er ekki sama hvernig við svörum. Við þurfum þjálfun í að svara þeim svo vel sé.  Það er skylda okkar og ábyrgð.  Við þurfum að þjálfa okkur sem trúboða og erindreka Guðs, úti á akrinum.

 

Vegurinn, kirkja fyrir þig, boðar til námskeiðs um ofangreind atriði, sem brenna á vörum fólks í þjóðfélaginu.  Við höfum ákveðið að kalla námskeiðið “Heitu málin!”.  Námskeiðið byggist upp á 50 mín fyrirlestri, 15 mín kaffihléi og síðan umræðum í litlum hópum í aðrar 50 mín. Samtals 2 klukkustundir.  Farið er fram á virka þátttöku þeirra sem námskeiðið sækja.

 

    Hefst:       Mvd. 10. feb. og lýkur mvd. 24. mars (7 vikur)

    Staður:      Vegurinn, Smiðjuvegi 5, Kópavogi

    Tími:         kl. 20:00 - 22:00

    Verð:        Frítt, en óskað er eftir frjálsum framlögum

                    fyrir kaffimeðlæti og virkri þátttöku í hópunum

    Skráning:  í síma 564-2355 eða á vegurinn@vegurinn.is

 

Námskeiðið er öllum opið og ÞÚ...ert hjartanlega velkomin(n)

 

                                                      Smiðjuvegi 5 l 200 Kópavogur l Sími 564 2355 l Fax 564 2351     Vefstjóri: Hilmar Halldórsson

Fréttir
Senda inn bænarefni