Barnastarf
Barnastarf
Bókabúð Vegarins
Heimahópar
Karlastarf
Krakkastarf
Lofgjörðarhópur
Unglingadeild


VEGABRÉFIÐ
PÓSTLISTI
SENDA PÓST
SPJALLRÁSIN

 

Barnastarf

Barnastarf Vegarins er aldursskipt og fer það fram samhliða aðalsamkomu kirkjunnar, kl. 14-16 á sunnudögum. Börn eru með foreldrum sínum í aðalsalnum í upphafi samkomu en fara síðan með sínum aldurshóp í hliðarsali þar sem sérstök dagskrá er fyrir þau.

 

Ungbarnastarf fyrir 0-2 ára

Barnastarf fyrir 3-8 ára börn

Krakkastarf fyrir 9-12 ára.

 

Markmið og hugsjón:

Að börnin byggist upp í Guði, læri að þekkja frelsara sinn, Jesú Krist og eignist góða félaga og vini.  Hafi gaman og njóti sín.

 

 

UNGBARNASTARF fyrir 0-2 ára börn:

 

 

Hér er stundin byggð upp á söng og dæmisögum úr Biblíunni á myndrænu formi. Þátttakendur sitja í hring á gólfinu og áhersla er lögð á notalegheit og hlýju.  Í lok stundarinnar fá börnin hressingu, t.d. barnasamlokur, djús og/eða vatn.

 

Umsjón: Birna Ýr og Bryndís Rut Stefánsdóttir

 

 

BARNASTARF fyrir 3-8 ára börn:

 

 

Fyrst er stundin lögð í Guðs hendur, tekin fórn fyrir barnastarfið eða öðru málefni sem ákveðið er að styðja.  Farið er yfir minnisvers mánaðarins, sungið og fleira.  Síðan hefjast leikir og svo kennsla eða prédikun.  Leikirnir eru fjölbreytilegir og reynum við að vera með nýja leiki ferska af trénu.  Prédikunin er í ýmsu formi.  Hún getur verið töluð, leikin, dúkkuleikhús, saga, dæmisögur eða annað.  Einu sinni í mánuði eru allir saman (barna- og krakkastarfið) og þá er grín og glens.  Boðskapurinn er þá leikinn.

 

Þegar kennslu lýkur tekur við val.  Í boði er skartgripagerð, föndur og bakstur og svo er hægt að leira, perla, lita, leika sér með dót, fara í borðtennis, þythokkíborð, fótboltaborð, fara út í fótbolta og fleira. 

 

Umsjón:  Ásdís M. Rafnsdóttir og Njáll L. Marteinsson fara fyrir starfinu en síðan eru margir frábærir starfsmenn sem leggja hönd á plóginn.

 

 

KRAKKASTARF fyrir 9-12 ára börn:

Hér er farið í leiki eða fjallað um efni úr Biblíunni. Leikirnir eru fjölbreytilegir og reynum við að vera með nýja leiki ferska af trénu.  Prédikunin er í ýmsu formi.  Hún getur verið töluð, leikin, dúkkuleikhús, saga, dæmisögur eða annað.  Einu sinni í mánuði eru allir saman (barna- og krakkastarfið) og þá er grín og glens.  Boðskapurinn er þá leikinn.

 

Þegar kennslu lýkur tekur við val.  Í boði er skartgripagerð, föndur og bakstur og svo er hægt að leira, perla, lita, leika sér með dót, fara í borðtennis, þythokkíborð, fótboltaborð, fara út í fótbolta og fleira. 

 

Umsjón:  Ásdís M. Rafnsdóttir og Njáll L. Marteinsson

 

 

 

                                                      Smiðjuvegi 5 l 200 Kópavogur l Sími 564 2355 l Fax 564 2351     Vefstjóri: Hilmar Halldórsson

Deildir innan Vegarins / Barnastarf
Senda inn bænarefni